Einn tveir og elda!

Lalalala bamba, það er ótrúlegt hvað maður hefur alltaf mikinn athyglis brest á sunnudögum. Ég held að meðal afköst mín í lærdóminum í dag hafi verið sirka 20% af venjulegum afköstum á þeim tíma sem ég eyddi í lærdóminn en það var þó eitthvað….

Helgin var alveg ágæt, á föstudeginum var ákveðið að vera með bjórkvöld á Boston (af öllum stöðum… aldrei heyrt um staðinn þangað til á fimmtudaginn). Áður en haldið var á bjórkvöldið var partý hjá Ella með gamla góða drykkjuspilinu, Guitar Hero, danse off og fleira. Boston var nú ekki spennandi staður en frír bjór er frír bjór þannig að staðurinn var allavegana nýttur meðan bjórinn var til staðar. Eftir bjórkvöldið var svo kíkt á Vegamót eins og alltaf og svo endað með stuttu stoppi á Hressó.

Restin af myndunum

Laugardagurinn var hrikalegur, mætti sjúklega hress í vinnuna klukkan ellefu um morguninn og svo var unnið til bloody miðnættis þannig að ég var orðinn rangeygður eftir daginn. Ákvað samt að kíkja aðeins í bækurnar þannig að ég hélt uppí skóla og rumpaði hafa góðu lestra session í Verðmati áður en ákveðið var að kíkja aðeins niður í bæ. Niðrí bæ rakst ég á Maríönnu og Hörpu Þöll sem ákváðu að skilgreina mig sem “bitchið” sitt þetta kvöld og draga mig fram og til baka með sér þangað til ég gafst upp í kringum fimm leitið og flúði af vettvangi og fór að hitta annað fólk. Án efa eitt skemmtilegasta edrú bæjarferð sem ég hef upplifað enda þær stöllur, Maríanna og Harpa alveg kostulegar í geðveikinni eins og venjulega.

Svona í restina er hin frábæra sýrumynd Charlie The Unicorn, algjör snilld:


Related posts from the blog:


3 Comments

  1. Maríanna

    nei nei nei nei.. þetta er steiktast video sem ég hef séð.. var bara með fast í hausnum á mér í þynnkunni “CHARLIE! CHARLIE!” heppin að fá ekki bara martröð ;o)

  2. Bjössi

    Hmmm var að spá í boðskap myndarinar

  3. Hannes Smárason

    Hvað á ekkert að blogga……

Trackbacks/Pingbacks

  1. Hansr.net » Blog Archive » Charlie The Unicorn 2 - [...] Guð minn góður, nú er sko komið framhald af einu mesta sýrutripi sem ég hef séð á YouTube ever ...