Afmæli og Eurovision
Posted on May 27, 2008 in BlogÁ laugardaginn seinasta skellti ég mér í afmæli hjá Örvari og Helga (Wong) sem var að sjálfsögðu líka Eurovision partý með öllu tilheyrandi húllum hæ. Ég kom víst frekar í seinni kanntinum á staðinn því ég var svo lengi að pakka inn gjöfunum en kassarnir voru aðeins ýktir á stærð:
Drengirnir voru mjög ánægðir með gjafirnar en Örvari gaf ég eitt stykki nærbuxur með mynd af Bingó genginu og Helga gaf ég vígalegt sverð og superman kall.
Í partýinu var mikið húllum hæ yfir Eurovision og kröftug keppni í gangi sem að Hrund vann glæsilegan og vel útilátinn sigur á. Sá sigur skilaði henni einnig því að vera svoldið mikið í því en lifði þó af. Sigur hennar kom til því hún hlaut Rússland sem sitt land í keppninni og bar að drekka vel í hvert skipti sem þeir fengu 12 stig en eins og allir vita vonandi unnu Rússar sigur úr bítum, sem kom svosem ekki á óvart enda með alveg fínt lag þannig séð og geðveika skauta senu :P
Bingó gengið samdi svo fallegt lag handa drengjunum og flutti við mikinn fögnuð viðstaddra:
Hér er eitthvað af myndum frá kvöldinu:
Related posts from the blog:
- Ahhhh það er svo mikið að gera…
- Noise
- Góðgerðaruppistand
- Manchester tónleikarnir
- OMG hvað vax er vont!









Snillingur!