Árshátíð Pragma og Tvíundar 2007
Posted on Mar 3, 2007 in BlogÍ gær var haldin árshátíð Pragma og Tvíundar í Eldborg við Blaá Lónið. Skipulagið og undirbúningurinn er búinn að vera mikill og ekki var allt tilbúið seint á fimmtudagskvöldi þannig að maður var orðinn svoldið stressaður. Í vikunni vorum við búin að lenda í því að fallið var frá að styrkja fordrykkinn hjá okkur, Svafa Grönfeld sá sér ekki fært að vera heiðursgestur hjá okkur eins og áætlað var og svo afboðaði veislustjórinn okkar Steinn Ármann sig. Þetta reddaðist samt allt, Brynjar eðlisfræðikennari tók að sér að halda hátíðarræðuna og við fengum Karl Ágúst Úlfsson sem skemmtanastjóra. Árshátíðin gekk frábærlega, það var happadrætti, frábær matur, úrslit netkosningarinnar þar sem ég vann skandall ársins fyrir skotið í London, Elli og Ómar Berg tóku lag þar sem gert var grín af nokkrum nemendum og svo var auðvitað árshátíðar myndbandið sem var algjör snilld. Þrátt fyrir vesenið í gær út af atriðinu ópal atriðinu sem var sleppt varð það algjörlega að skemmtiefni kvöldsins enda ótrúlega fyndið að þetta skyldi vera notað í frétt. Ótrúlegt hvað svona video getur haft mikil áhrif. Atriðið sem var notað í staðinn var betra, en þar var ég leikinn af Svavari að drekka glas af ópal og fleira, svo var líka gert grín af því hvað ég sendi mikið af tölvupóst fyrir hönd nemendafélagsins. Maggi ætlar að skella myndbandinu á netið þannig að það verður hægt að skoða það online, vonandi missir sig enginn yfir því eins og atriðinu sem við slepptum að hafa :P
Myndirnar ættu sennilega að koma á mánudaginn en í kvöld er stefnan á afmæli hjá Rebekku.
Related posts from the blog:







Haha, þettavar algjör snilld, ekki er vídjóið á netinu þegar gissivar að læra í rólegheitunum inní sal þegar þið notuðuð Gjallarhornið ?
og pressa á Margeir að setja þetta Vídjó inn a.s.a.p. :D