Bláa höndin og über kaka
Posted on May 14, 2006 in BlogUsssh nú er maður bara búinn í skólanum og læti, alveg hrikalegt, svo byrjar maður bara beint að vinna á mánnudaginn. Á föstudaginn var náttúrulega klikkað próflokadjamm þar sem Sjálfstæðisflokkurinn bauð 180 manns úr HR í vísindaferð til sín í Valhöll. Það var svo ógeðslega mikið áfengi þarna að það er ekki fyndið og allir orðnir vel blekaðir og ég engin undantekning á því. Basically þá var ég svo fullur að ég vissi ekki hvar hausinn á mér var og fór í eitthvað svona zombie dæmi. Ég fór víst niðrí bæ og var bara á einhverju þvílíku rugli en sem betur fer var Sigrún þarna á bíl og reddaði mér heim klukkan eitt.
Í gær var svo afmæli hjá Bjögga. Ég hafði fyrir því að búa til huge skúffuköku sem var basically sex kökur skellt saman og hún vakti mikla lukku. Mér gekk allavegana betur að halda sjálfum mér sane í þetta skiptið og var bara semi rólegur í drykkjunni. Þetta var bara chill fílingur og það var bara mjög fínt, nennti ekki einu sinni niðrí bæ, þannig að ég fór bara heim eftir afmælið.
Related posts from the blog:






Basically finnst mér þú segja basically aðeins of oft. Svona af því að þetta er nú orðið allt á Íslensku.
En ég vil fá að vita hvort að kakan hafi klárast?
Svona er bara að skrifa hlutina þegar maður er enn undir áhrifum frá kvöldinu áður :P
Það kláraðist alveg slatti af kökunni, örugglega svona 1/4 til 1/3.