Going Postal

Going Postal eftir Terry Pratchett er búinn að sitja á náttborðinu hjá mér í svona hálft ár því ég kem alltaf svo þreyttur heim á kvöldinn að ég meika ekki að lesa en núna loksins tókst mér að komast í gegnum hana.

Going Postal er ein af nýrri bókunum í Discworld seríunni eftir Pratchett og kynnir til nýja aðalpersónu í heimi Discworld og það er Moist von Lipwig sem er alræmdur svikahrappur sem hefur haft aleiguna af fjölda manns í gegnum árin. Þegar kemur til að á að hengja Moist fyrir það svik og svínarí sem hann hefur framkvæmt í Ankh Porpork býður leiðtogi borgarinnar Lord Vetinari honum að taka að sér rekstur pósthúsins sem refsingu í stað þess að vera hengdur. Pósthúsið hefur verið lokað í fjölda ára og enginn nýtir sér hann lengur vegna tilkomu svonefndra clank skeita sem er Discworld útgáfan af tölvupóst. Uppfrá þessari fáranlegu hugdettu Vetinari hefst stórskemmtileg frásögn af þeim kúnstum sem Moist setur fyrir sig til að koma pósthúsinu í gang aftur.

Frábær bók þar sem Pratchett skilur ekkert eftir og fer ótrauður fram á veg við að kítla í manni hláturtaugarnar.


 

Í öðrum Discworld fréttum þá mun SkyOne sýna leiknar útgáfur af Color of Magic og Light Fantastic sem eru fyrstu tvær Discworld bækurnar um páskana. Hlakka rosalega til að sjá þær enda tókst þeim frábærlega vel með að gera Hogfather:


Related posts from the blog: