Engin aukning á skortsölum á næstunni

Eins og flestir sem eru að læra fjármálaverkfræði vill maður að fjármálamarkaðurinn hér heima þroskist og dafni þannig að hann verði jafn virkur og markaðir erlendis. Hinsvegar er markaðurinn hér heima ekki nógu þroskaður enn sem komið er, gott dæmi um það er að núna í maí seinast liðinn var loksins opnað fyrir virk markaðsviðskipti með afleiður á íslandi en þetta er enn ekki komið í neinn farveg og enginn farinn að nýta sér þetta. Afleiðu viðskipti eru enn á “person to person” grundvelli frá bankanum og Íslendingar eru svo grænir í þessu að meiri hlutinn af þeim sem reyna að græða á þessu lenda bara í að tapa.

Þetta var kanski smá útúrdúr frá því sem ég ætlaði að fjalla um en þurfti aðeins að koma þessu frá mér… Allavegana þá ættu nú flestir að hafa heyrt um skort sölur þó þeir hafi einfaldlega ekki hugmynd um hvað þær eru. Til að útskýra þetta á einfaldan hátt er þetta fjármála viðskipti sem fara gjarnan fram þegar einhver hefur trú á að verðbréf muni falla gífurlega í gildi (oftast á skömmum tíma) og fær því lánuð bréfin frá fjársterkum aðila sem á þau og þeir krefjast á móti tryggingar sem er oftast meira en 100% til að tapa aldrei á láninu. Aðilinn sem fær bréfin svo lánuð selur þau á markaðnum og nýtir fjármagnið sem hann fær fyrir þau í aðrar fjárfestingar og þegar kemur svo af skuldardögum kaupir hann bréfin aftur á markaðinum og skilar til lánsaðila. Þetta er smá einföldun á ferlið en skýrir allavegana grunninn. Wikipedia útskýrir þetta aðeins betur ef þið hafið áhuga. Þetta var líka aðal punkturinn með söguþráðinn í Casino Royale þar sem vondi kallinn ætlaði að græða geðveikt á að skortselja í flugfélaginu.

Lítið hefur verið um skortsölur á þessu blessaði landi til þessa enda fáir fjársterkir aðilar sem eru í stöðu til að lána verðbréf til að slík viðskipti geti átt sér stað. Hinsvegar hafa ákveðnar stofnanir hér heima verið að vinna að því að fá virkni í þessi markaðsviðskipt með því að innleiða þau gegnum lífeyrissjóðina sem hafa nægilega stór söfn til að stunda lánastarfsemi og hafa í raun engu að tapa því að verðbréfalánin eru alltaf tryggð í bak og fyrir. Hinsvegar þá gaf fjármálaeftirlitið út lagalega álitsgerð (túlkun) í seinustu viku þess efnis að þessi lán væru ekki leyfð fyrir lífeyrissjóði á þeim forsendum að þá skorti lagaheimild til þess því að þeir verði að tryggja langtímahagsmuni sjóðsfélaga…. wth, hvernig er hægt að tapa á verðbréfalánum sem eru tryggð í bak og fyrir með 100%+ tryggingu…. Þannig að íslenski markaðurinn þarf að bíða aðeins þangað til að skortsölur fara að gerast hér heima af einhverri alvöru.

Hægt er að lesa álitsgerðina hér.

Vá hvað það eru örugglega fáir sem nenntu að lesa þetta röfl… set inn einhverja skemmtilega færslu á eftir, þarf að klippa smá video fyrst samt.


Related posts from the blog:


1 Comment

  1. Bjössi

    Meira svona :)