Fallhlífarstökk og seðlar

Ég, Helgi og Addi höfum ákveðið að skella okkur í fallhlífarstökk og tókum okkur til í dag og fórum á námskeið þar sem allt sem maður þarf að vita um línustökk er kennt frá A-Ö, venjulega er þetta skipt á tvö kvöld en við tókum þetta í einu setti og kostaði það sjö klukkutíma af setu við “skólabekk”. Þegar líða tók á seinni helming kvöldsins var maður orðinn frekar þreyttur á þessu og verklegu æfingarnar tóku hrikalega langan tíma sem var ekki gaman. Það að eyða föstudagskvöldinu sínu til miðnættis í að þykjast vera búinn að flækja fallhlífina sína í eitthvað rugl og þurfa losa sig við hana og nota varafallhlífina er ekkert rosalega skemmtilegt en hvað lætur maður ekki á sig fá til að stökkva út úr flugvél í 3400 feta hæð, jummy :) Erum að vonast til að komast á sunnudaginn svo framarlega sem er gott veður.

Annars var ég líka rosalega að pæla í hvað er fólk alltaf að gera með seðla á sér, í gær afgreiddi ég tvo menn sem báðir borguðu sitthvora 17″ MacBook Pro og aukahluti með cash… wtf, vélarnar sjálfar kosta 319.990 kr og þeir voru að borga með seðlum. Ég hef aldrei séð svona mikið af fimmþúsund köllum áður. Þetta voru í heildina rúmlega 125 fimm þúsund kallar og svo slatti af tvö þúsund köllum (fyrsta skipti sem ég sé meira en tvo saman komna í einu). Ég bara skil ekki afhverju fólk er að hafa fyrir því að hafa svona mikið reiðufé með sér, til að spara 11 kr færslugjald, nei ég held ekki. Annars er þetta svo sem ekki óalgengt þó þetta hafi verið extreme dæmi fólk kemur oft og borgar hitt og þetta með seðlum, kanski á það erfitt með að hafa yfirsýn með fjárhagnum öðruvísi en þessi seðla notkun er allavegana gjörsamlega ofar mínum skilningi…


Related posts from the blog:


3 Comments

  1. Þetta kallast eiturlyfjasalar Hansi.

  2. Já maður myndi halda það, nema annar var einhver gamall kall og hinn var að kaupa útá fyrirtækið.

  3. Hefurðu lent í því að einhver karl með sólgleraugu í Hawai-skyrtu með 3 efstu tölurnar óhnepptar komi inn með skjalatösku fulla af peningum?

    Ef svo er væri fínt að vita það, þetta er frændi minn sko