Halldórsstaðir
Posted on Jun 19, 2006 in BlogÉg, Bjöggi, Magga, Helgi, Sigrún og Héðinn skelltum okkur norður í Laxárdal yfir helgina til að skemmta okkur og súpa hressilega. Við fórum af stað seinni part á föstudeginum og þá var keyrt eins og lífið lagi við í marga marga klukkutíma til að komast á skikkalegum tíma uppeftir og vorum við mætt alla leið á áfangastað um ellefuleitið. Við komu var hamborgurum skellt á grillið og bjór opnaður eins og við má búast. Það var alveg frábært veður um nóttina og yndislegt að komast burt úr rigningunni á höfuðborgarsvæðinu og við vorum nokk passlega lengi að þar sem farið var í drykkjuleik og stíflugerð. Á laugadeginum kom í ljós að Helgi væri týndur þegar við vöknuðum, á meðan ákváðum við að skella okkur að skoða “innsta bæinn í dalnum” Ljótustaði sem er gamall bær sem virðist hafa verið yfirgefinn í flýti og er nú eyðibýli. Eftir að skoða gamla bæinn hafði Helgi skilað sér og við fórum öll saman á Mývatn og skelltum ökkur í jarðböðin sem voru opnuð hittífyrra. Það var mjög notalegt að skella sér þangað, þetta var svona svipað og Bláa Lónið nema vatnið var ekki salt og hitinn var ekki alveg jafn allstaðar í jarðbaðinu. Um kvöldið sáum við strákarnir um að elda glæsilega máltíð með beikonvöfðum skötusel á pinnum. Maturinn var glæsilegur og gómsætur, í eftirrétt voru svo grillaðir bananar með súkkulaði. Að matinum loknum voru allir orðnir eitthvað þreyttir og slappir þannig að það var farið í drykkjuleik og málunum reddað á svona 20 mínútum og allir orðnir vel drukknir. Seinna um nóttina var svo farið í “hólmgöngu” þar sem vaðið var útí hólma útí Laxá og svo þegar var komið til baka var tekist til við að dansa og sumir á engu nema nærbuxunum. Daginn eftir var ekki farið á fætur fyrr en um klukkan hálf fjögur og var lagt af stað heim um leið og búið var að ganga frá.
Related posts from the blog:
- Fyrsta helgin afstaðin
- Fucking andskotans…
- Októberfest
- Til hamingju Pragma
- Sleppa drykkju heila helgi?






ljúfa líf, er einhver annar gjörsamlega þakin mýbiti
Mýbiti? Bíta mýflugur almennt? Ertu ekki bara með lús Bjöggi minn :p
neinei alveg eins og moskító flugur þá eru til tegundir af mýflugum sem stinga.
http://visindavefur.hi.is/svar.asp?id=365
Ljótustaðir er krípí staður. Þetta lítur bara út eins og að fólkið hafi farið bara einn daginn og skilið allt sitt eftir. Ef að kíkt er inn í eldhússkápinn má finna fullt af góðu stöffi.
Annars hef ég komið að Halldórsstöðum margoft en mér sýnist ég hafa verið í öðrum bústað.
Þú hefur líklega verið í bústaðnum fyrir neðan okkar.