Hallgeirsey

Seinasta helgin var náttúrulega fyrsta helgin í júlí og ekkert annað að gera nema fara í útilegu. Ég, Addi, Héðinn og Hilmar félagi Héðins skelltum okkur á Hallgeirsey, útilegu háskólanema. Það var alveg frábær stemming og við fengum gott veður. Nóg var af fólki, allt að 500 manns, allir í góðum fíling og helgin nær alveg laus við vandræði allavegana varð ég ekki var við það. Ótrúlegast var að þrátt fyrir mikla drykkju er lítið um skandala eftir helgina nema þegar við ákváðum að kaupa þorskalýsi og bjóða útlendingunum úr BEST hópnum uppá það sem staup :P


Related posts from the blog:


2 Comments

  1. Þér finnst það kannski fyndið en ég fékk að kenna frekar illa á því síðar um kvöldið sem þakkir fyrir lýsið!
    What goes around comes around, þó það hafi reyndar verið sterkara an lýsi…

  2. Ég var einmitt að pæla í því í ljósi vinsælda ópals og tópas staupanna hvort það ætti ekki að gera áfengt lýsi. Það myndi seljast eins og heitar lummur, pottþétt!