London 2007

Þá er maður kominn aftur í kuldan og skólan, farinn að húka yfir ógeðslegri tölfræði og torskilinni stærðfræði (T-401-MATH). Sem betur fer var helgin í London alveg frábær og fyllti mann með smá orku fyrir komandi önn. Ferðin hófst að sjálfsögðu í Leifsstöð þar sem allir mættu ósofnir en hressir af spennu og fengu sér munnbita fyrir flugið. Þegar maður fer í svona ferð þá er alltaf eitthvað eitt sem gleymist en það er enginn sem gleymir eins og hann Helgi okkar, enda tókst honum að gleyma veskinu sínu og þá myndaðist nú smá panic að hafa uppá því en það skilaði sér að lokum og Helgi rétt náði fluginu.

Þegar við komum út var haldið beinustu leið í Imperial College í miðri London þar sem við fengum kynningu á skólanum og leist mér bara mjög vel á. Það voru flestir á því eftir þessa kynningu að hér væri sniðugt að stefna að loknum BS. Hinsvegar er náttúrulega ekkert grín að búa í London þannig að ef ég ætla að taka Masterinn í Imperial neyðist ég sennilega til að taka mér árs leyfi til safna pening fyrir verunni. Uppá móti kemur samt að maður getur klárað á einu heilu ári þannig að maður myndi ná Masternum á sama tíma samt sem áður.

Efitr skólan var brunað uppá hótel öllum hennt inn, bjór keyptur og svo bara ready set go farið í vísó í Landsbankann. Í Landsbankanum beið okkur stutt kynning og svo óhóflegt magn af bjór og léttvíni. Þegar við vorum búin að vera sirka tvo og hálfan í Landsbankanum fórum við aftur uppá hótel en nei með í för ákvað að slæpast sauðdrukkinn starfsmaður Landsbankans, Adrian sem kom með okkur og varð valdur að því að okkur var hennt út áður en komið var á hótelið og við þurftum að rölta restina af leiðinni. Það var ekki langt en Helgi og Gunni ákváðu að hjálpa Adrian og urðu viðskila og týndir. Það gekk víst ekkert að fá leigara fyrir kvikindið þannig að þeir redduðu sjúkrabíl og skyldu gaurinn eftir.

Þegar uppá hótel var komið tók við smá rólegheit og sötur. Þegar klukkan var orðin nógu margt samkvæmt bestu heimildum um London djamm þá var haldið af stað í leit að skemmtistaðnum O”neils sem var á þremur hæðum og átti að taka allt að þúsund manns inn. Þegar komið var inná staðin héldum við að þetta hefði verið regin mistök enda meðal aldurinnn á jarðhæð sirka 40 og útlitið eins og á Amsterdam hér heima. Við hættum okkur nú samt aðeins lengra og þegar komið var á aðra hæð leit þetta strax mun betur út. Staðurinn bauð upp á góða tónlist, dj á annari og fyrstu hæð og live coverband á þriðju með stóru dansgólfi. Þarna var djammað (og Kári rifinn úr skyrtunni) þar til fólk varð uppgefið af dans eða þar til staðurinn lokaði klukkan þrjú.

Á laugardeginum vakti Elli djöfull mig allt of snemma en ég náði að sofna aftur svo við fórum á fætur uppúr hádegi. Þá skelltum ég, Geiri og Addi okkur á lítinn enskan stað og fengum okkur Fish n” Chips eins og maður verður að fá í Englandi. Næsta stopp var að finna fleira fólk þannig að við tókum Undergroundið og höfðum uppá fólkinu á enn einum pubnum. Þaðan héldum við að kaupa skólabækur og svo uppá hótel að undirbúa ferðina á Hard Rock. Á Hard Rock hittist svo allur hópurinn að borða og sötra kokteila og bjór. Þegar aftur var komið uppá hótel var ekkert annað sem kom til greina en herbergis partý og svo var lagt af stað aftur niðrí bæ, flestir kíktu á O”neils aftur en það var crazy troðið þar þannig að margir ákváðu að halda annað. Persónulega ruglaðist ég eitthvað í rýminu og sturtaði í mig fullu kókglasi af ópal af öllum andskota og það eina sem kom uppí hugan þá var “óhhh crap, ég á eftir að deyja” (og ég sem var búinn að vera svo rólegur fram að því). Er búinn að sjá video tekið nokkrum mínútum fyrir og eftir og það er eins og heilinn á mér deyji bara í millitíðinni. Ég komst nú samt blessunarlega uppá hótel áður en ég drapst, þökk sé Bjögga og Adda, þó ég hafi verið smá tíma enn á staðnum.

Á sunnudeginum vaknaði ég eld hress þó ótrúlegt sé, enda vel útsofinn. Planið um daginn var að fara í búðir eða á British Museum en endaði einhvern vegin á að vera mjög löngum hádegismat og svo pub þar til við þurftum að fara, en það var bara fínt. Sumir ákváðu samt að kíkja aðeins á Cheers og “dansa” smá. Rétt áður en var farið voru svo Rósa, Siggi og Helgi kvödd enda þau á leiðinni í skiptinám, sem þýðir að ég þarf sennilega að læra að læra uppá nýtt ef ég hef ekki Helga til að rökræða við um heimadæmin.

Ferðin heim gekk svo óskum framar eins og öll þessi ferð í raun. Hinsvegar blasti við manni kuldi og ógeðslegur snjór við heimkomuna þannig að grafa þurfti bílinn hans Einars úr stæðinu svo við kæmust heim.




Fleiri myndir frá London:
Mínar
Ella
Þórðar
Öglu

Nokkur video úr ferðinni, fer svo í að klippa myndband um helgina eða uppúr henni.

Svo seinast en ekki síst:

“Quotebook”

“Þetta er allt mömmu að kenna, hún er alltaf svo stressuð að ég get bara ekki verið það” – Helgi, þegar hann fattaði að hann gleymdi veskinu

“Ég ætla að skortselja mömmu þína” – Einar, einkahúmor fjármálaverkfræðinga

“Djöfull eru allir þarna inni eins og gaurinn í Heroes” – Elli um alla asíubúana í Imperial

“Ég hef ekki pissað síðan á Íslandi” – Óskar

“Er hún ekki 26 ára og í sambúð?” – Hansi
“Nákvæmlega, mikil reynsla og engin skuldbinding” – Helgi

“Eina videoið sem ég nenni að horfa á” – Gissi um Call on me, með Eric Prydz

“I”m partying, I”m partying, we”re rocking, we”re rocking” – Adrian, og datt svo beint á gólfið

“Ég set alltaf koníak útí lika” – Geiri um að búa til kokteilsósu

“Mamma elskar mig” – Helgi, þegar hann var spurður um vesenið sem er alltaf á honum.

“Ég var að reyna að ná mynd af typpinu á mér” – Helgi um mynd sem mátti ekki sjá á vélinni hans

“Ég er svo dofin í rassinum af helvítis pulsunni” – Lovísa

“Ég er ekki svo full að ég fái ekki ris” – Lovísa

“Ef það er snjókoma ætli hórurnar fari bara í snjógalla” – Helgi

“Ef þú færð ekki að ríða í útlöndum þá þarf bara að flytja druslurnar inn” – Ónafngreint


Related posts from the blog:


0 Comments

Trackbacks/Pingbacks

  1. Hansr.net » Blog Archive » Ópal videoið - [...] Tók burt ópal videoið enda fólk gjörsamlega að missa sig yfir þessu, komið á 69.is og blogið hjá Denna ...