MY 900

Ahh fewy, ég skellti bílnum í bíla áttuna í gær til að láta festa eitt stykki öxulhosu sem hafði losnað á framhjólinu. En nei það gekk náttúrulega ekki eftir. Fyrst hringir gaurinn í mig og segir að að spindilkúlurnar báðu megin séu að gefa sig. Ég er náttúrulega ekki alveg sáttur við það en verð enn meira shocked þegar ég kemst að því að það er ekki hægt að fá spindilkúlurnar sér heldur þyrfti ég að kaupa allan drif öxulinn báðu megin :( En auðvitað var það ekki nóg heldur hringdi hann stuttu seinna og hafði þá tekið eftir því að neðsti parturinn af afturhringjunum var farinn, BÁÐU MEGIN. Darn it, when it rains it pours og að sjálfsögðu er það eitthvað sem er bara hægt að fá nýtt frá umboðinu eða notað einhverstaðar. Þannig að heildina hefði ég endað með að vanta varahluti uppá 78 þúsund og svo viðgerðina ofaná það en sem betur fer gat ég skellt mér á partasölu og fékk partana á 34 þúsund þannig að ég slapp ágætlega þar en svo er bara viðgerðin eftir :/ Allt að fara í einu er týpískt fyrir mig. Ég verð bara að bæta mér þetta upp um helgina, riiiiisa vísindaferð á föstudaginn, 180 manns og svo afmæli hjá Bjögga á laugardaginn.


Related posts from the blog:


1 Comment

  1. Nú veistu hvernig kúnnunum þínum líður.
    Kúnni: það er eitthvað að ipodinum mínum
    Hansi(eða hver sem er sem vinnur í þessu djöfullegu búð): Já hann er ónýtur þú verður að kaupa nýjan. Kostar einungis 39 og níu á tilboði.
    fokkings mellur………..