Ópal videoið

Tók burt ópal videoið enda fólk gjörsamlega að missa sig yfir þessu, komið á 69.is og blogið hjá Denna í Ísland í Dag og svo hringdi Fréttablaðið í mig áðan…. er þetta virkilega fréttnæmt? Þetta var meint sem saklaust grín út í anda blessaðrar London ferðarinnar þar sem ég svolgraði í mig eitt stykki 300ml ópal í mjólkurglasi en ég hélt að það væri kók (takk Játi).

Fékk áðan símtal frá pabba sem var lítið sáttur enda þetta ekki við hæfi fyrir alþjóð…

Videoið var sviðsett og ætlað til að gera grín af skotinu sem ég tók útí London. Þetta átti að vera fyrir árshátíðarmyndbandið okkar en við hættum við að hafa það því það var búið að gera grín af því í öðru atriði. Auðvitað er ekki raunhæft að hafa drukkið svona mikið og ekki drepast bara strax. Hvað þá skila verkefninu inn og fá 7 í einkunn.

Ég er búinn að eyða öllum deginum í að redda þessu máli, videoið verður samt sýnt í Íslandi í dag í kvöld í umfjöllun um drykkjukeppnir og ofsadrykkju í háskólum….

Jæja farinn að redda loka málum fyrir árshátíðina í kvöld.


Related posts from the blog:


3 Comments

  1. Kemur árshátíðarvídjóið á Youtube? Það var ekki lítil snilld verð ég að segja!

  2. Jú það var nú planið, þarf að heyra í Magga eftir helgi með það.

  3. Takk fyrir það Hákon, við skellum þessu á netið mjög fljótlega og látum vita á pragma.is þegar það verður komið.