Prófa fæði
Posted on Nov 18, 2006 in BlogHvað gerist þegar maður fer í próf? Jú maður svo til flytur niður í skóla (sumir eru heima hjá sér en ég get ekki einbeitt mér þar) og sekkur sér í bækurnar eina af annari og rembist við að sofna ekki eða deyja úr leiðindum. Það er líka eitt sem breytist í prófum og það er bölvað mataræðið, ég er manneskja sem er ótrúlega veikur fyrir breytingum í mataræði og þetta mataræði sem maður temur sér í prófum er ekki gott. Maður fer miklu oftar út í skyndibita og fljótlegar og einfaldar máltíðir og er latari við að redda sér góðu nesti. Svo að ekki sé gleymt bölvuðu kexinu, ég held ég hafi farið langt með að stúta heilum pakka af kexi í gær, ekki gott stöff eða jú alltof gott stöff. Þetta verður þess valdandi að maður bætir oftast á sig í þessum blessuðu prófum því augljóslega hefur maður ekki jafn mikinn tíma og venjulega til að hanga í ræktinni og ég þarf nú barast mína tvo tíma á dag til að viðhalda sömu þyngd…
Kanski hefur þetta ekki svona mikil áhrif á aðra. Ég myndi nátla seint teljast til eðlilegra einstaklinga þegar kemur að metabolisma og líkamsþyngd enda á seinustu þremur og hálfu ári búinn að skoppa úr 113 kílóum í 72 kíló (anorexic með innfallin maga, það var scary tímabil) og svo aftur uppí 85 kíló og núna búinn að halda mér stabílum í 78-80 kílóum í hálft ár en metabolisminn er enn drullu hægur. Þannig að mataræðið skiptir mig miklu máli en ég vildi að maður gæti bara notið þess að vera í prófum, úðað í sig ógeði og hafa engar áhyggjur af þyngdinni eins og margir félagarnir en fyrir mig er það sennilega bara þrusu ræktar turn í desember.
Fyrst verður samt farið í ÓGEÐSLEGT sukk næstu helgi, bjór drykkja fram úr öllu valdi og þá verður sko notið þess að vera til :)

Related posts from the blog:






Skál fyrir því!