Skipt yfir í íslensku

Jæja svo virðist sem að þessir fáu einstaklingar sem höfðu einhverja skoðun á því á hvaða tungumáli ég skyldi blogga hafi ákvarðað að nú skuli ég bara tala íslensku :)

Annars er ég bara búinn að vera í ruglinu í dag, ég ætlaði að vera alveg ofur duglegur að læra undir stærðfræðina en nei það gengur aldrei nokkuð eftir þegar maður ætlar að vera duglegur og ég endaði nátla snemma heima og nenni ekki að læra meira. Þess vegna er eins gott að ég nýti tíman næstu fimm daga fyrir prófið. Ætla nú samt að skella mér eitthvað út á lífið á morgun, vorum eitthvað að íhuga að taka okkur saman “gömlu” félagarnir úr Versló og fara á smá djúsirí í anda páskana. Eftir það verður sko lært (ef ég segi sjálfum mér það nógu oft þá hlýtur það að gerast!).

Svo verður svo skemmtun í næstu viku, seinasta prófið er búið á verður pragma með glæsilegt próflokadjamm, á fimmtudaginn er ég svo að pæla í að halda partý fyrir verkfræðinema hjá mér, föstudagurinn er svo stjórnardjamm hjá Pragma og á laugardaginn er svo staffadjamm hjá Apple. Þannig að það verður á nógu að taka í næstu viku.

Svona á öðrum nótum var afleiðing þess að ég var að sluksast í gegnum stærðfræðina í dag var að maður fór að skoða skrýtnar og kjánalegar síður eins og til dæmis Japanska lögreglan vs. Darth Vader (önnur útgáfa). Rakst líka á þennan geðveika minnislykil, hver vill ekki eiga 64GB minnislykil! Seinast en ekki síst er um að ræða þessa glæsilegu sögu með umferðaskiltum :)

Vá ég komst lifandi í gegnum heila færslu á íslensku :)


Related posts from the blog:


1 Comment

  1. An�ta

    Ég er ekki sátt við þessa nýung.
    Ég var sáttari við ensku útgáfuna. Af einhverri undarlegri ástæðu var auðveldara að lesa rausið í þér þegar það var skrifað á öðru tungumáli. Eina sem vantar núna til að bæta gráu ofan á svart er að þú farir að handskrifa þetta! Þá er heimurinn alvarlega farinn að stefna til glötunar.
    Please write in English. It’s way too much fun.