Tölfræði
Posted on Sep 20, 2006 in BlogÚff hvað ég hata tölfræði, ég er að taka Tölfræði I núna, búinn með 4 vikur, 8 vikur eftir og svo Tölfræði II eftir áramót. Tölfræði er eitt leiðinlegasta fag sem hægt er að setja mann í. Þetta er bara eitthvað rugl, kennslan er öll miðuð við ideal hluti og ég hef enn ekki séð eitt einasta dæmi sem hægt væri að framkvæma í raunveruleikanum því skilyrðin fyrirfinnast engan vegin. Ekki er nóg með að þetta sé leiðinlegt fag heldur er kennarinn ekki uppá marga fiska, muldrar oft bara við sjálfan sig uppá töflu, skrifar illa og sleppir stöfum í orðum og flýtir sér í gegnum efnið. Svo í dag ákvað hann að sýna okkur á einhverri endemis dembu hvað við myndum læra á næsta ári, jibby mig langaði að skjóta mig í hausinn… hef aldrei séð jafn illa útskýrða og leiðinlega reikninga.
En nóg um þetta ógeðslega fag. Seinasta föstudag var víst engin skemmtun á vegum Pragma þannig að ég ákvað að bjóða nokkrum heim til mín að grilla. Héðinn, Helgi, Addi, Bjarni, Örvar og Lovísa mættu á staðinn. Héðinn, Helgi og Addi bjuggu til einhvern magnaðan lögg fyrir kjötið og einnig mjög góða sósu og síðan var grillað. Ég og Addi vorum einu sem vorum að drekka þannig að við skelltum okkur í Technis partý í Skeifunni. Það voru frekar fáir þar og ekkert spes stemming þannig að við gripum Ella sem var þar að spila á gítar og skelltum okkur niður í bæ. Þá fóru staupinn sem Addi hafði fengið mig útí að kicka inn (kláruðum hálfan pela af Ópal á mann áður en við lögðum af stað frá mér, damn you Addi) við Elli týndum Adda og ég man eftir að hafa farið á Kofann en svo er kvöldið ein móða, ég hef pott þétt verið leiðinlegur, þreyttur og erfiður. Vona bara að ég hafi ekki gert eitthvað hrikalegt af mér.
Á laugardeginum var það svo vinnan eins og venjulega. Sveitti borgari þessa Laugardags var frá Brautarstöðinni, einstaklega góðir borgarar en frekar slappar franskar. Um kvöldið fór ég svo í partý í nýju húsgagnaverslunina sem Úlli er að opna og heitir Modern. Alveg einstaklega flott búð og ekki skaðaði að það var alveg nóg af fríu áfengi. Eini gallinn var að ég þekkti engan nema Úlla og Agga en hafði séð eitthvað af liðinu áður enda flestir úr viðskiptafræðinni í HR. Eftir góða drykkju uppí búð var haldið niðrá Vegamót. Var eitthvað inná Vegamótum en var ekkert að fíla mig neitt rosalega með þessum hóp og þessar djamma báða daga helgar farnar að taka á þreytustiginu mínu. Þegar ég var svo á leiðinni heim hringdi ekki Addi í mig og vildi ólmur að við fengjum okkur meira að drekka en nei það voru raðir bloody allstaðar, líka Cultura og við nenntum ekki að standa í þannig svo við ætluðum bara að taka leigubíl. Það gekk ekki heldur vel því að það kom alveg dembi rigning og við urðum alveg sós blautir sem var ekki spennandi en við fengum þó bíl á endanum.
Sunnudagurinn var svo samkvæmt ákvörðun flestra versti dagur hvað varðar skólaverkefni allra tíma. Það lá fyrir að klára Tölfræði verkefnið sem átti að skila á miðnætti og gildir 10% af loka einkunn. Ég var með Helga og Bjögga í hóp og við vorum örugglega 12 tíma að vesenast fram og aftur í þessu og ekki að skilja neitt, miskilja annað og bara almennt í vitleysunni en þetta kláraðist korter í tólf en þá komumst við að því að enginn skila bakki var til staðar í afgreiðslunni og að við áttum eftir að gera fjárstýringar verkefnið fyrir morguninn… skull dagur. Það jákvæða við hann er að hann er búinn og kemur aldrei aftur :)
Næst á dagskrá er svo að nýta vikuna í að “troða” nýnemum inná Pragma.is og svo á föstudaginn verður spennandi vísindaferð með tilheyrandi vitleysu og á laugardaginn er víst óvissuferð fyrir stjórnarmeðlimi allra nemendafélagana í HR, það verður örugglega eitthvað rosalegt rugl.
Related posts from the blog:






Ég er ekki frá því að það hafi verið múv aldarinnar að fá Tölfræði I metna ;)